Málstofustjóri

Kristín Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar.

Örmálstofa kl. 15.00 til 16.30

Ræður réttarkerfið við nútímann?

Hröð þróun í tækni og gervigreindarlausnum felur í sér nýjar áskoranir í réttarkerfinu sem geta grafið undan trausti til þess og öryggi í samfélaginu. Á málstofunni verður fjallað um ýmis mikilvæg álitaefni sem hafa komið upp og vekja upp spurningar um traust.  Er birting gagna í „Stafrænu pósthólfi“ örugg og fylgir hún settum reglum? Hvernig má sannreyna áreiðanleika stafrænna sönnunargagna og hvað með djúpfalsanir? Er hægt að takast betur á við netsvikin; er verið að ofbeita persónuverndarlögum á kostnað viðkvæmra hópa?

Öryggi og traust á rafrænu réttarkerfi

Framsögumaður

Elfur Logadóttir lögfræðingur og framkvæmdastjóri ERA.

Djúpfalsanir og sönnunargögn

Framsögumaður

Dröfn Kærnested saksóknari hjá ríkissaksóknara.

Netsvik og netglæpir

Framsögumaður

Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður hjá LEX lögmannsstofu.