Málstofustjóri

Jónína S. Lárusdóttir, framkvæmdastjóri innri markaðssviðs ESA.

Málstofa 3 - kl. 15.00 til 16.30

Fjármálalögfræði

Á málstofunni verður boðið upp á þrjú áhugaverð erindi sem varða fjármálamarkaðinn.

Ný reglugerð um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

AML pakkinn svokallaði var kynntur af Evrópsku framkvæmdastjórninni 20. júlí 2021. Markmiðið var að koma á samevrópsku AML/CFT regluverki (Single Rulebook), stofna nýtt eftirlitsvald AMLA og samræma framkvæmd varna gegn peningaþvætti um alla Evrópu. Pakkinn sem var síðar samþykktur samanstendur af þremur meginstoðum. Það er AMLR, AMLD6 og AMLA. Nýja eftirlitsvaldið AMLA hefur nú þegar tekið til starfa en AMLR og AMLD6 tekur gildi í júlí 2027. Fjallað verður um helstu breytingar sem fylgja þessum pakka auk þeirra áskorana og tækifæra sem fylgja honum fyrir fjármálafyrirtæki á íslenskum markaði.

MiCA og innleiðing á lögum um markaði fyrir sýndareignir

Með lögum nr. 101/2025 var reglugerð (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir (MiCA) innleidd í íslenskan rétt, en um er að ræða heildstæða löggjöf um sýndareignir og viðskipti með þær. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hugtakið sýndareignir og þær áhættur og tækifæri sem þeim fylgja, farið yfir reglugerðina og markmið hennar og tilgang sem og þær breytingar sem leiða af innleiðingu hennar í íslenskan rétt.

REMIT-reglur á Íslandi

Með lögum nr. 45/2026 voru lögfestar reglur um viðskipti á heildsöluorkumarkaði raforku að fyrirmynd REMIT-reglugerðar ESB og koma þær til framkvæmda um næstu áramót. Fjallað verður um upplýsingaskyldu vegna innherjaupplýsinga og bann við markaðssvikum samkvæmt hinum nýju ákvæðum raforkulaga, þau borin saman við reglur fjármálamarkaðarins samkvæmt MAR og varpað ljósi á hvað reglurnar þýða í framkvæmd fyrir þátttakendur á íslenskum raforkumarkaði

Ný reglugerð um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Helstu nýjungar og áhrif á fjármálafyrirtæki

Framsögumaður

Lilja Kristjánsdóttir, forstöðumaður viðskiptaeftirlits Íslandsbanka hf., í stjórn ACAMS Nordic Chapter.

MiCA og innleiðing á lögum um markaði fyrir sýndareignir

 

Framsögumaður

Fannar Freyr Ívarsson lögmaður hjá LOGOS

REMIT-reglur á Íslandi

Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga og bann við markaðssvikum á heildsöluorkumarkaði

 

Framsögumaður

Andri Fannar Bergþórsson lögmaður hjá Acta Legal og prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.