
Málstofustjóri
Sigurður Tómas Magnússon hæstaréttardómari.
Málstofa 4 - kl. 13.00 til 14.30
Ómerking dóma vegna annmarka á sönnun
Fjallað verður um hvenær annmarkar á sönnunarfærslu eða sönnunarmati geta leitt til ómerkingar dóms. Sérstök áhersla verður lögð á nýlega dóma Hæstaréttar í sakamálum og leitast við að kortleggja þau sjónarmið sem þar koma fram. Jafnframt verður íslensk réttarframkvæmd sett í samhengi við kröfur um réttláta málsmeðferð samkvæmt 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.

Framsögumaður
Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Framsögumaður
Sindri M. Stephensen dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og dósent við Lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Pallborð
Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari

Pallborð
Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara.