
Málstofustjóri
Sigurður Tómas Magnússon hæstaréttardómari.
Málstofa 4 - kl. 13.00 til 14.30
Ómerking dóma vegna annmarka á sönnun
Í almennri umræðu er yfirleitt litið á eignarréttinn þannig að eigandi megi gera það sem honum sýnist og að reglusetning eða takmörkun eignarréttar eigi að vera undantekning. Ríkisvaldið verði að beita valdi sínu með hóflegum hætti og greiði fullar bætur fyrir verðmætisrýrnun sem verður. Þessar hugmyndir sjást víða, m.a. í umsögnum hagsmunaaðila við áform löggjafar- og framkvæmdarvaldsins. Oft veldur þetta hræðslu hjá þeim sem setja reglurnar og leiðir til ákveðinnar tregðu við reglusetningu. Þessi orðræða nærist að hluta til á því að það hefur verið óljóst í íslenskum rétti hvar mörkin liggja við mat á því hvort eignarskerðingar gangi of langt.
Í þessari málstofu verður fjallað um nýjar kenningar um svigrúm löggjafans til þess að setja eignarréttindum takmörk sem byggja á áralöngum rannsóknum framsögumanna. Með hinum nýju kenningum er hvatt til þess að endurhugsa stjórnskipulegan eignarrétt að ákveðnu marki og velt upp hvar mörkin eiga að liggja milli eignarnáms og annars konar takmarkana á eignarréttinum. Leitast verður við að svara hvað ætti að koma til skoðunar við mat á því hvort takmarkanir ganga of langt, hvaðan reglan sækir stoð sína, hvort rétt sé að skerpa á beitingu meðalhófsreglunnar og hvort skaðabætur séu yfirleitt viðeigandi úrræði þegar gengið er of langt í skerðingu eignarréttar.

Framsögumaður
Hafsteinn Dan Kristjánsson prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Framsögumaður
Sindri M. Stephensen dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og dósent við Lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Pallborð
Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari

Pallborð
Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara.